Velkomin á vef Kappadeildar
Kappadeildin var stofnuð 28. mars 2007 á 30 ára afmæli Delta Kappa Gamma. Hún er 10. deildin sem stofnuð er innan samtakanna. Deildarkonur eru allar af höfuðborgarsvæðinu og eru flestar úr Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ.
Haldnir eru sex til átta fundir á ári, ýmist í heimahúsum, kaffihúsum eða á vinnustöðum Kappasystra. Kappakonur koma úr ýmsum og ólíkum störfum í þjóðfélaginu og láta sig varða margvísleg mál á sviði mennta- og menningarmála.
Stjórn Kappadeildar 2024-2026:
- Linda Hrönn Helgadóttir, formaður
- Herdís Anna Friðfinnsdóttir, meðstjórnandi
- Sigrún Kristín Magnúsdóttir, meðstjórnandi
- Svanhildur Svavarsdóttir, meðstjórnandi
Stjórnin á eftir að skipta með sér verkum.
Alir myndir á vefnum okkar eru birtar með leyfi þeirra sem á þeim eru og ljósmyndaranna.
All photos on our webpages are published with permission from the participants and the photographers.