Stefna-markmið-sýn
Markmið, stefna og sýn Iotadeildar er í samræmi við markmið, stefnu og sýn alþjóðasamtaka Delta Kappa Gamma sem eru eftirfarandi:
Stefna samtakanna:
„Alþjóðasamtökin Delta Kappa Gamma stuðla að auknum fræðilegum og persónulegum þroska kvenna í fræðslustörfum og gæðum í menntun og uppeldisstörfum“.
Markmið samtakanna:
Að stuðla að alþjóðasamstarfi kvenna í fræðslustörfum.
Að heiðra konur sem standa eða hafa staðið framarlega á sviði menntamála/fræðslumála eða eru að vinna markverð störf í þágu þeirra.
Að efla starfsáhuga og stöðu kvenna í fræðslustörfum.
Að stuðla að æskilegri lagasetningu og styðja framgang hvers konar viðleitni til hagsbóta fyrir menntamál/fræðslumál almennt og fyrir konur í fræðslustörfum.
Að veita konum, sem skara fram úr í menntamálum, styrki til framhaldsnáms í háskóla og styrkja konur í fræðslustörfum utan samtakanna.
Að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og hvetja þær til virkni.
Að fræða félaga um það sem efst er á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna.
Sýn Delta Kappa Gamma kvenna er að vera:
Forystukonur í fræðslustörfum til áhrifa á menntun um allan heim.
Síðast uppfært 10. maí 2021