Afmæliskveðja

Afmæliskveðja
Afmæliskveðja

Við óskum systur okkar, Láru Gunndísi Magnúsdóttur, innilega til hamingju með að vera í dag orðin hálfsextug og af því tilefni leita á vit ævintýra í Brighton að láta drauma sína rætast. 

Við óskum Láru góðrar ferðar, og dvalar næstu 2 vikurnar, við að efla þekkingu sína á engilsaxneskri tungu með þessum orðum: Við getum ekki uppgötvað ný höf ef við höfum ekki hugrekki til að leysa landfestar.