Góður jólafundur
07.12.2012
Jólafundur Mý-deildar var haldinn miðvikudaginn 29. nóvember síðastliðinn.
Fundurinn var vel sóttur, og buðum við vinkonum okkar í Beta-deild að vera með okkur. Á fundinum hlýddum við á jólasögu eftir Svavar
A. Jónsson og Ragnheiður Júlíusdóttir söng fyrir okkur falleg jólalög.
Stjórn Mý-deildar bauð uppá jólahlaðborð með ýmis konar kræsingum sem tilheyra aðventunni og eftir matinn fengum við
góðan gest í heimsókn. Það var Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur sem kom og spjallaði við okkur um skáldskap, sagði
okkur frá bókunum sínum og las að lokum uppúr þeirri nýjustu, Blávatnsorminum. Stjórn Mý-deildar þakkar fundarkonum
kærlega fyrir komuna og samveruna á þessari ljúfu kvöldstund.
Í myndaalbúmi eru myndir frá jólafundinum.