Fimmti og síðasti fundur vetrarins
27.04.2014
Hjá okkur er fimmti fundur vetrarins framundan og verður hann haldinn þriðjudaginn 29.apríl, kl. 17:30 Fundurinn verður haldinn að Dugguvogi 9, Reykjavík (Gult hús
með ljósblárri útihurð).
Dagskrá:
1. Fundur settur og kveikt á kertum.
2. Skýrsla fráfarandi stjórnar.
3. Uppstillingarnefnd deildarinnar gerir grein fyrir störfum sínum.
4. Kjör stjórnar.
5. Orð til umhugsunar.
6. Mæðgurnar Embla Ágústsdóttir, sem lýkur BA prófi í félagsfræði nú í vor, og
Guðrún Hjartardóttir, verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, segja frá reynslu sinni
og skólagöngu Emblu á öllum fjórum skólastigunum; leikskóla, grunnskóla,
framhaldsskóla og háskóla. Frásögn þeirra er áhrifarík og lætur engan ósnortinn.
7. Léttar veitingar og notaleg samvera.
8. Önnur mál.
9. Fundi slitið.