Fundur í Austurbæjarskóla 16. mars
15.03.2016
Næsti fundur deildarinnar verður haldinn 16.mars klukkan
17 - 19. Fundurinn verður haldinn í Austurbæjarskóla
en Kristín Jóhannesdóttir sem situr í stjórn Alfadeildar er skólastjóri þar.
Þess má geta að Kristín er fyrsta konan til að gegna því embætti. Gengið er inn um aðalinngang skólans. Formaður setur fund, kveikt verður á kertum og minnst Jennu
Jensdóttur sem lést 6.mars. Jenna var einn af stofnfélögum DKG á Íslandi
7. nóvember 1976. Margrét Sigurðardóttir blindrakennari flytur orð til
umhugsunar. Gestur fundarins, Arnfinnur Jónsson, skólastjóri og formaður hollvinafélags Austurbæjarskóla, flytur erindi.