Fyrsti fundur nýs starfsárs
18.09.2015
Fyrsti fundur starfsársins verður haldinn
laugardaginn 19.september klukkan 11:00 - 13:00 og verður það inntöku og
kynningarfundur þar sem nýir félagar verða boðnir velkomnir til samstarfs.
Fundurinn verður haldinn í Borgarleikhúsinu og mun kynningarfulltrúi
leikhússins ganga með okkur um húsið og kynna vetrardagskrána. Að því loknu
hefjast hefðbundin fundarstörf. Á boðstólum verður léttur hádegisverður.