- 6 stk.
- 31.01.2024
Jólafundur Gammadeildar var haldinn á heimili Gerðar G. Óskarsdóttur í Kópavogi.
Guðrún Edda Bentsdóttir, forseti landssambands Delta Kappa Gamma var gestur fundarins og var með orð til umhugsunar.
Ragna Sigurðardóttir, rithöfundur las upp úr bók sinni "Þetta rauða það er ástin".
Hildur Jóhannesdóttir stjórnaði og spilaði undir fyrir Gammakonur sem sungu nokkur vel valin jólalög.