Velkomin á vef Gammadeildar
Gammadeild var stofnuð í Reykjavík, 5. júní 1977 og er þriðja deildin sem stofnuð var á Íslandi.
Stofnendur deildarinnar voru 16 talsins og var fyrsti formaður Pálína Jónsdóttir.
Gammakonur koma úr ýmsum og ólíkum störfum í þjóðfélaginu og láta sig varða margvísleg mál á sviði menningar og menntamála. Átta til níu fundir eru haldnir á ári hverju, en auk þess eru Gammakonur duglegar að sækja landssambands- og vorþing samtakanna sem og alþjóða- og Evrópuþingin.
Gammakonur eru 40 talsins og afar duglegar að mæta á fundi, sem oft eru haldnir í heimahúsi. Auk þess heimsækjum við vinnustaði hverrar annarrar, skóla, aðrar stofnanir og vinnustaði sem við fræðumst um.
Stjórn Gammadeildar 2024–2026
- Bryndís Jóna Jónsdóttir, formaður og vefstjóri
- Ragný Þóra Guðjohnsen, varaformaður
- Ingibjörg Jóhannsdóttir, ritari
- Björk Einisdóttir, meðstjórnandi
- Þórdís Helga Ólafsdóttir, gjaldkeri
Allar myndir á vefnum okkar eru birtar með leyfi þeirra sem á þeim eru og ljósmyndaranna.
All photos on our webpages are published with permission from the participants and the photographers.
The Delta Kappa Gamma Society International is not responsible for anything posted to this site and makes no representation as to the accuracy or completeness of information contained in such material. The views expressed on this site do not necessarily represent or reflect the views of The Delta Kappa Gamma Society International. The Delta Kappa Gamma Society International is not responsible for, and disclaims any liability in relation to, anything posted by contributors to, or users of, the site.