Ingibjörgu Einarsdóttur veitt viðurkenning Samtaka móðurmálskennara
07.07.2015
Á vorfundi Samtaka móðurmálskennara 2015, sem haldinn var 26. maí í Gunnarshúsi, var Ingibjörgu Einarsdóttur Gamma-systur veitt
viðurkenning fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu móðurmálsins, meðal annars fyrir ötult starf í þágu
Stóru upplestrarkeppninnar.
Hjartanlega til hamingju, kæra Ingibjörg!