Ástir og átök. Kvennabaráttan þá og nú.
30.09.2010
Föstudaginn 1. október verður haldið málþing um ástir og átök kvennabaráttunnar á Íslandi, í
stofu 132 Öskju, kl. 14.00-16.00. Samstarfsaðilar um málþingið eru Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum (RIKK) og Skotturnar,
regnhlífasamtök kvennahreyfingarinnar á Íslandi. Tilefnið er Kvennafrídagurinn sem haldinn verður í þriðja sinn þann 25. október
2010.
Kvennahreyfingin á Íslandi á sér nú langa sögu sem einkennst hefur af áræðni, átökum, glettni, sorgum og sigrum. Á málþinginu verða reifaðar helstu niðurstöður rannsókna á hugmyndafræði, baráttuaðferðum, og átakapunktum kvennahreyfingarinnar á ólíkum tímum.
Fyrirlesarar munu fjalla um Rauðsokkahreyfinguna, kvennaframboðin og femínista 21. aldarinnar en jafnframt segja frá eigin reynslu úr kvennabaráttunni og draga fram lexíur sem eiga erindi við kvennahreyfingu samtímans. Tekist verður á við spurningar eins og:
- Hverju hefur kvennabaráttan áorkað?
- Sýnir sagan að eitthvað sé varhugavert í kvennahreyfingunni?
- Hverju gleymdi kvennabaráttan?
- Hvert á kvennahreyfing 21. aldarinnar að stefna?