Fyrrverandi alþjóðaforseti, Nadine Ewing, látin

Fyrrverandi alþjóðaforseti, (1976-1978), Nadine Ewing, lést sunnudaginn 8. mars. Nadine fæddist í Clinton, Iowa, 13. desember 1912. Hún starfaði lengst af í Joliet í Illinois og var síðustu árin skólastjóri Taft Elementary skólans í Joliet. Nadine gekk til liðs við samtökin árið 1959 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir samtökin þessi fimmtíu ár. Hún hlaut „International Achievement Award“ viðurkenninguna árið 1979.