Umsóknarfrestur til 1. febrúar

Við minnum á að umsóknarfrestur um International Scholarship styrkinn er til 1. febrúar. Styrkurinn er fyrir félagskonur sem hyggja á framhaldsnám og þurfa þær að hafa verið virkar í samtökunum í þrjú ár og vera komnar með staðfestingu á námsumsókn. Doktorsnemar ganga að öllu jöfnu fyrir um þennan styrk. Ef þú uppfyllir skilyrðin, drífðu þá í að fylla út umsókn!