Vígdís Finnbogadóttir opnar málstofu um menntun stúlkna og kvenna

Málstofa um menntun stúlkna og kvenna á 36. aðalráðstefnu Unesco, menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, í París hófst formlega fimmtudaginn 27. október síðastliðinn.  Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands opnaði málstofuna með fyrirlestri en hún er velgjörðarsendiherra Unesco og ráðgjafi framkvæmdastjóra Unesco, Irinu Bokovu. Málstofan var haldin í tilefni af átaksverkefni Unesco, Samstarfi heimsbyggðarinnar um menntun stúlkna og kvenna. Samstarfið hófst fyrr á árinu og tekur fjöldi stofnana, félagasamtaka og fyrirtækja um heim allan þátt, þar á meðal Nokia og Microsoft, auk aðildarríkja Unesco. Verkefnisráðið kynnir mikilvægi þess að jafna stöðu kynjanna með menntun og kynna hagnýtar lausnir og góð fordæmi. Í tilkynningu frá Unesco kemur fram að í dag eru 39 milljónir stúlkna á gagnfræðaskólaaldri sem eiga ekki völ á skólagöngu. Þetta eru 26 prósent allra stúlkna á aldrinum 11 til 15 ára. Tvær af hverjum þremur stúlkum í Afríku fá ekki gagnfræðamenntun og af 796 milljónum fullorðinna jarðarbúa sem eru ólæsir eru 2/3 konur. Talið er að það gæti bjargað allt að 1,8 milljónum mannslífa á ári ef stúlkur í Afríku sunnan Sahara fengju almennt að ganga í gagnfræðaskóla (tekið af vef Fréttablaðsins).