Þinghald
Delta Kappa Gamma á Íslandi heldur þing árlega. Annað hvert ár (á oddatölu) eru haldin svokölluð landssambandsþing en hin árin (á jöfnu tölunni) svokallaðar vorráðstefnur.
Á landssambandsþingum eru jafnframt haldnir aðalfundir samtakanna þar sem kosin er ný stjórn til tveggja ára. Landssambandsþing standa yfir í tvo daga og er dagskrá vegleg með fjölbreyttum erindum, hátíðakvöldverði og skemmtiatriðum.
Næsta landssambandsþing verður haldið 2025 .
Vorráðstefnur standa oftast yfir í einn dag og eru mismunandi fræðsluþemu yfirskrift ráðstefnunnar hvert ár. Allajafna er boðið upp á fjölbreytt og áhugaverð erindi.
Næsta vorráðstefna verður haldin vorið 2026.
Alþjóðlegar ráðstefnur innan svæða alþjóðasambandsins eru haldnar annað hvert ár (á oddatölu). Næsta alþjóðaráðstefnan á Evrópusvæðinu verður haldin í Brighton á Englandi 18. - 20. júlí 2025.
Alþjóðasambandsþing eru einnig haldin annað hvert ár (á jöfnu tölunni) og verður næsta alþjóðaþing haldið í USA, 2026.
Þær konur sem fara á alþjóðaráðstefnu og eru með erindi, geta sótt um styrk til fararinnar og má nálgast umsóknareyðublað hér
Síðast uppfært 04. sep 2024