100 ára afmæli kosningaréttar og kjörgengi íslenskra kvenna 19. júní 2015

DKG hefur borist bréf frá Alþingi þar sem okkur er boðið að senda 1-3 konur á undirbúningsfund, ásamt fulltrúum sem flestra samtaka íslenskra kvenna, vegna 100 ára afmælis kosningaréttar og kjörgengi íslenskra kvenna 19. júní 2015. Fundurinn verður haldinn laugardaginn 14. september kl. 11 í Víkinni, Sjóminjasafninu í Reykjavík, Grandagarði 8. Þeir sem hafa áhuga á að að sitja fundinn fyrir okkar hönd eða vilja nánari upplýsingar hafi samband við Guðbjörgu fyrir 21. ágúst n.k. (gugga@mitt.is - sími: 898-6842)