Landssambandsþing Delta Kappa Gamma

Landssambandsþingið sem jafnframt er 30 ára afmælisþing, verður haldið dagana 5.-7. maí 2007 í Reykholti í Borgarfirði.

Þema þingsins er „Konur í fræðslustörfum á Íslandi í 30 ár og sýn til næstu tíu ára“. Fosshótel Reykholt tekur við pöntunum og greiðslu fyrir herbergi þingdagana og tekur Vala Kristinsdóttir vala@fosshotel.is á móti þeim. Nú er um að gera að drífa í að skrá sig því allt stefnir í lærdómsríkt og skemmtilegt þing.