Tillaga um stjórn alþjóðasambandsins 2008-2010

Uppstillingarnefnd alþjóðasambandins hefur lokið störfum og á vef alþjóðasamtakanna var í gær (13.11.2007) birtur listi yfir þær konur sem verða í framboði til stjórnar alþjóðasambandsins tímabilið 2008-2010. Framboðið verður kynnt á alþjóðasambandsþinginu í Chicago í júlí 2008. Það er ánægjulegt að sjá að Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir í Alfadeild er á þessum lista og óskum við henni til hamingju með þann heiður.