Vottun

Þau ánægjulegu tíðindi gerðust í dag, 4. desember 2007,  að vefur samtakanna okkar  var samþykktur hjá alþjóðasambandinu. Um leið og það gerðist kom tengill inn á síðuna okkar frá síðu alþjóðasambandsins og við fengum jafnframt leyfi til að setja vottunarmerkið sem sjá má hér á síðunni neðst til vinstri inn á síðuna hjá okkur. Þess má geta að á sama tíma fékk Beta-deildin vottun á sinn hluta vefsins og jafnframt tengil og vottunarmerki.