Afmæli Betadeildar
04.06.2012
Laugardaginn 2. júní hélt Betadeild upp á 35 ára afmæli sitt. Á þeim tímamótum er tilefni til að heiðra konu fyrir vel
unnin störf að mennta- og/eða menningarmálum og hefur deildin gert það á fimm ára fresti. Að þessu sinni varð Rósa Guðrún
Eggertsdóttir sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri fyrir valinu en hún hefur
lagt mikið að mörkum til menntamála.
Rósa hefur haldið ótal námskeið, um flestar hliðar læsis, víðs vegar um landið og unnið með fjölda kennara að margskonar
þróunarverkefnum sem öll miða að bættum árangri nemenda. Auk þess hefur hún haft umsjón með framhaldsnámi í
lestrarfræðum við kennaradeild Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Til hennar leita gjarnan kennarar og annað
skólafólk eftir góðum ráðum og leiðsögn varðandi hvaðeina er viðkemur læsi.
Rósa er höfundur að nýrri nálgun í lestrarkennslu sem hún nefnir Byrjendalæsi. Aðferðina hefur hún þróað
í samstarfi við starfandi kennara í grunnskólum og samstarfsfólk sitt á Miðstöð skólaþróunar við Háskólann
á Akureyri. Markmiðið er að kennarar öðlist aukna fræðilega þekkingu á læsi og færni í lestrarkennslu. Aðferðinni hefur
verið mjög vel tekið og mat á árangri nemenda sýnir jákvæðar niðurstöður. Í vetur vinna um 30 skólar víðs
vegar á landinu eftir aðferðinni. Næsta vetur munu að líkindumum það bil 20 nýir skólar bætast í hóp þeirra
skóla sem vilja tileinka sér þessi vinnubrögð í kennslu læsis. Rósa hefur gefið út námsefni fyrir grunnskólanemendur og
fræðirit fyrir kennara og annað skólafólk.
Þennan dag glöddust einnig með okkur félagar í Mý deild, landssambandsforseti sem heiðraði okkur með nærveru sinni og einn félagi
úr Kappadeild sem stödd var hér á svæðinu.
Við í Betadeild þökkum þeim öllum kærlega fyrir samveruna þennan dag.
Myndir frá afmælinu má sjá í myndaalbúminu okkar.