Alfadeild heimsækir Þetadeild

Konur úr Alfa deild lögðu land undir fót og heimsóttu Þeta deildar konur þann 1. nóvember.  Þær létu engar veðurspár aftra sér frá skemmtilegu ferðalagi og fóru saman með rútu frá Perlunni.  Þeta deildarkonur tóku vel á móti Alfa deild í Duushúsi menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar. Tvær sýningar voru skoðaðar undir leiðsögn Þeta deildar kvenna og síðan snæddur léttur kvöldverður. Afskaplega fræðandi og skemmtilegur fundur og konur áttu góða kvöldstund saman og kynntust og spjölluðu saman yfir heitri súpu og salladi.