Alþjóðaþingið næsta sumar

Í sumar, nánar tiltekið 20. - 24. júlí, verður alþjóðaþing Delta Kappa Gamma haldið í Spokane í Washingtonfylki í Bandaríkjunum. Á vef alþjóðasambandsins má lesa nánar um þingið og þar er einnig hægt að skoða myndbandskynningu á þinginu. Ef konur hafa hug á að vera með erindi á þinginu þarf að vera búið að senda inn útdrátt  (proposal)fyrir 15. febrúar.
Delta Kappa Gamma systur eru eindregið hvattar til að kynna sér dagskrá þingsins og reyna að sækja þennan viðburð sem að sögn þeirra sem sótt hafa slík þing er bæði fræðandi og skemmtilegur.