Bás DKG á sýningunni Afrekskonur í Ráðhúsi Reykjavíkur
02.09.2015
Við þökkum Kristínu Jónsdóttur í Gammadeild og stjórnarkonu í landsambandsstjórn kærlega fyrir að setja upp bás DKG á sýningunni Afrekskonur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýningin opnar á morgun, fimmtudaginn 3. september, klukkan 17:00 og er opin alla daga vikunnar skv. opnunartíma Ráðhússins (mán.-fös 8.00-19.00 og helgar 12.00-18.00).