Búið að birta dagskrá Pre-Conference dagsins 2. ágúst í Baden_Baden

Nú er búið að birta dagskrá Pre-conference dagsins 2. ágúst á Evrópuráðstefnunni í Baden-Baden í sumar. Yfirskrift dagsins er "Educational Challenges in the 21st century that teachers meet in their work". Er dagurinn stútfullur af áhugaverðum fyrirlestrum og er ráðstefnugjaldið fyrir daginn aðeins 20 Evrur (3246 kr). Innifalið í gjaldinu er hádegismatur, kaffi og staðfesting á þátttöku. Þær sem ætla sér að taka þátt í þessum degi þurfa að tilkynna þátttöku til Ingibjargar Jónasdóttur (ij@host.is) fyrir 31. maí 2011. Nánar má lesa um dagskrána hér.