DKG systur koma víða við

Nú nýlega tók Oddný G. Harðardóttir meðlimur í Þetadeild við embætti fjármálaráðherra og er fyrsta konan til að gegna því embætti. Hún er einnig fyrsta konan til að vera formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þetasystur eru að vonum stoltar af sinni konu og sendum við þeim og ekki hvað síst Oddnýju sjálfri árnaðaróskir með embættið og óskum henni alls hins besta í framtíðinni. Nánar um menntun og fyrri störf Oddnýjar má sjá á vef Alþingis.