Dr. Sigríður Valgeirsdóttir er látin
06.09.2011
Dr. Sigríður Valgeirsdóttir er látin. Sigríður var einn af stofnfélögum Delta-Kappa-Gamma á Íslandi og félagi
í Alfadeild. Hún hefur alla tíð unnið mikið starf fyrir samtökin hér á landi. Á landssambandsþinginu á Reykjanesi
í vor var hún gerð að heiðursfélaga.
Félagskonur minnast hennar með þakklæti í huga fyrir vel unnin störf.
Blessuð sé minning hennar.
Sigríður Ragna Sigurðardóttir, forseti landssambandsins