Evrópu þingið í Baden-Baden/Steinbach, 3.–6. ágúst.

Delta Kappa Gamma systur okkar í Þýskalandi ásamt Kate York Evrópuforseta vinna nú að því hörðum höndum að skipuleggja næsta Evrópuþing sem haldið verður í Baden-Baden/Steinbach, 3.–6. ágúst 2011.

Þær vonast eftir að þingið verði bæði áhugaverður og fræðandi og síðast en ekki síst skemmtilegur viðburður, bæði fyrir öll níu landssamböndin í Evrópu sem og þær Delta Kappa Gamma systur vestanhafs sem hafa hug á að sækja þingið.

Ferð á Evrópuþing er alltaf spennandi og skemmtilegur viðburður sem gefur þeim sem fara ómetanleg tækifæri til að kynnast öðrum DKG systrum og efla sig í starfi og eru íslenskar DKG systur um allt land hvattar til að fara að huga að því með hvaða móti þær geta sótt þetta þing.

Nánari upplýsingar um þingið má nálgast á heimasíðu þýska landsambandsins sem verður uppfærð reglulega alveg þar til þing hefst.