Fleiri bækur úr smiðju DKG kvenna
04.11.2013
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir félagi í Lambdadeild, grafíklistakona og myndlistarkennari var einnig að gefa út bók á
dögunum í félagi við eiginmann sinn. Bókin er ljóðabók fyrir börn og heitir Ljúflingsljóð. Lárus Jón
Guðmundsson eiginmaður Aðalheiðar orti ljóðin og Aðalheiður myndskreytti. Hægt er að skoða sýnishorn úr bókinni á vefnum.
Við óskum þeim til hamingju með bókina!