Frá landssambandsforseta

Landssambandsstjórnin fundaði um daginn og lagði drög að framkvæmdaráðsfundinum í haust. Það gleymdist að taka myndir í góða veðrinu, en þegar ritnefndin heimsótti mig í vikunni mundi ég eftir myndavélinni. Einnig var smellt mynd af laganefndinni nú í vor.
 

Á laugardaginn liggur leiðin til Austin í Texas þar sem ég mun sitja Golden Gift námskeiðið. Í lok mánaðarins munum við fara fjórar héðan frá Íslandi á Alþjóðaþingið í Spokane í Washington-fylki.
Ég óska öllum Delta Kappa Gamma systrum alls góðs í sumar og hlakka til samstarfsins í haust.

Ingibjörg Jónasdóttir, forseti Landssambandsins