Fréttir frá Þetadeild

Bryndís Guðmundsdóttir félagi í Þetadeild hefur verið ráðin skólastjóri Myllubakkaskóla. Við sendum henni hamingjuóskir og óskum henni velferðar í starfi. Þess má einnig geta að á aðalfundi Þetadeildar þann 28. mars s.l. var kosin ný stjórn til næstu tveggja ára.
Sigrún Ásta Jónsdóttir var kosin formaður, Kristín Helgadóttir ritari og Geirþrúður Bogadóttir og Þórdís Þormóðsdóttir meðstjórnendur.