Fyrstu fréttir af landssambandsþingi

Stjórn landssambandsins hefur ákveðið, í samráði við Zeta-deild á Austfjörðum, að landssambandsþing 2009 verði haldið á Hallormsstað dagana 16. og 17. maí næstkomandi. Hægt verður að fá gistirými frá og með föstudeginum fyrir þá sem þess óska. Þema þingsins verður Nýi kennarinn. Nánari upplýsingar þegar nær dregur.