Golden Gift sjóðurinn –umsóknarfrestur rennur út 1. des

Við minnum á að frestur til að sækja um styrk úr Golden Gift Fund sjóðnum fyrir sumarið 2012 rennur út 1. desember. Sjóðurinn styrkir félagskonur til að sækja Leadership/Management Seminar sem haldið  er annað hvert ár í höfuðstöðvum samtakanna í Austin, Texas og stendur yfir í tvær vikur. Nánar má lesa um Goden Gift Fund á þessari slóð og einnig eru ráðleggingar hér.
Umsóknareyðublöð til að sækja um styrkinn eru hér, en bent er á að auk eigin umsóknar þarf að senda inn meðmælabréf frá formanni deildar auk meðmæla frá þriðja aðila sem þekkir vel faglega til þeirrar konu sem sækir um.
Engin íslensk kona er í nefndinni sem úthlutar úr sjóðnum en benda má á að fyrrverandi landssambandsforseti, Ingibjörg Jónasdóttir, hlaut svona styrk sumarið 2010 og er líkleg til að fræða væntanlega umsækjendur um hvernig best er að standa að umsókn.