Gönguhópur DKG hittist 3. nóvember

Gönguhópurinn hittist 3. nóvember síðastliðinn og hélt í sína fyrstu göngu undir vaskri stjórn Margrétar Jónsdóttur í Gammadeild. Sjá myndir Veðrið var yndislegt. Sjö DKG konur, þar af fjórar úr Alfadeild, gerðu upphitunaræfingar um leið og þær nutu sólsetursins. Gengið var eftir upplýstum göngustígum í Öskjuhlíðinni og fullt tunglið gaf fallega birtu. Þær sem mættu í þetta fyrsta skipti mæta örugglega næst því næg eru umræðuefnin og alltaf gaman að hitta konur úr öðrum deildum.
Næsta ganga verður þriðjudaginn 1.des kl. 17:30-18:30 frá Öskjuhlíðinni.