Gönguhópurinn kominn á fullt á nýju ári

Gönguhópurinn hittist við Ráðhúsið þriðjudaginn 25. janúar og var rölt um miðbæinn í þoku og úðarigningu, en yndislega mildu veðri. Þó ekki værum við margar þá vorum við sammála um að þetta hafi verið nærandi bæði á sál og líkama. Næsta ganga verður þriðjudaginn 15. febrúar og munum við hittast aftur við Ráðhúsið í Reykjavík kl. 17:30.