Göngum saman

Við minnum DKG konur á árlega styrktargöngu „Göngum saman“ næstkomandi sunnudag 11. maí. Göngum saman er styrktarfélag sem styrkir íslenskar grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og er styrktargangan aðalfjáröflunarleið félagsins.

Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göngum saman. Í ár verða meðal annars seldir bolir og höfuðklútar sem hannaðir voru sérstaklega fyrir félagið af Kron by Kronkron.

Gengið verður á 14 stöðum á landinu. Hér eru upplýsingar um göngustaði og tímasetningar.