Hverjar ætla til Baden Baden?

Tíminn líður hratt og það er nauðsynlegt að ákveða fljótlega með ferðina á þingið í sumar. Ódýrustu einstaklingsfargjöldin eru um 60 þúsund. Við erum búnar að biðja um hóptilboð hjá Flugleiðum og fáum að vita um kostnaðinn á mánudaginn. Þeir geta útvegað rútuferð til Baden Baden frá Frankfurt.

Einnig voru að berast upplýsingar um að örfá gistipláss eru eftir á ráðstefnustaðnum. Þannig að við þurfum að hafa hraðar hendur. Nú þurfa félagskonur að tilkynna til formanna sinna hverjar hafa áhuga á að vera með í þessu pakkatilboði frá Reykjavík til Baden Baden.
Flogið er út annaðhvort sunnudaginn 31. júli eða 1. ágúst og komið heim 7. ágúst. Fjöldinn mun ráða. Því þurfum við að vita um hádegi á mánudag um fjöldann.