Ingibjörg Einarsdóttir hlýtur fálkaorðuna
01.01.2013
Í dag, 1. janúar 2013, sæmdi Ólafur Ragnar Grímsson tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Í
þeim hópi var Ingibjörg Einarsdóttir félagi í Gammadeild en hún hlaut orðuna fyrir framlag til eflingar á lestrarhæfni
grunnskólanema en Ingibjörg er ein af
frumkvöðlum „Stóru upplestrarkeppninnar“ sem haldin er ár hvert í grunnskólum landsins.
Við óskum Ingibjörgu innilega til
hamingju með þennan heiður :-)