Ísland á forsíðu alþjóðasambandsins

Á forsíðu vefs alþjóðasambandsins eru núna komnar myndir frá Íslandi og ef smellt er á þær, ræsist upp síða þar sem fjallað er um Ísland og DKG á Íslandi og á henni eru tenglar í ýmsar síður sem fjalla um Ísland.  Pistilinn mun Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir í Alfadeild hafa tekið saman. Sennilega er þetta fyrsti pistillinn af fleirum þar sem fjallað verður um þau lönd og/eða fylki sem eiga aðild að Delta Kappa Gamma. Það verður spennandi að fylgjast með!