Kristín Jóhannesdóttir í Alfadeild hlýtur viðurkenningu

Í tilefni af Degi íslenskrar tungu afhenti Guðrún Kvaran, formaður Íslenskrar málnefndar, Kristínu Jóhannesdóttur í Alfadeild viðurkenningu. Viðurkenningin var afhent á málræktarþingi Íslenskrar málnefndar sem haldið var fimmtudaginn 14. nóvember 2013 í bókasal Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu en þema þess var Íslenska sem annað mál og börn með erlendan bakgrunn í íslensku skólakerfi​. Kristín er skólastjóri Fellaskóla, þar sem rúmlega helmingur nemenda býr við annað tungumál en íslensku á heimili.

Við óskum Kristínu innilega til hamingju með viðurkenninguna :-)