Leitað eftir hugmyndum

Eins og áður hefur komið fram verður Vorþing Delta Kappa Gamma haldið í Reykjavík laugardaginn 17. apríl 2010. Menntanefnd og landssambandið eru að undirbúa þingið. Yfirskrift þingsins verður Góðir hlutir gerast.

Leitað er eftir hugmyndum til félagskvenna:

  • um efni sem fellur að þessari yfirskrift og
  • staðsetningu.


Ætlunin er að hafa þingið opið eins og síðast og gerum við ráð fyrir um það bil 60 manns.

Tillögur að efni sendist til menntamálanefndar sigridurjohnsen@gmail.com, kristin.jonsdottir@mrn.stjr.is og  osak@msund.is en tillögur um staðsetningu til Ingibjargar landssambandsforseta ij@host.is