Lucile Cornetet styrkurinn

Einn er sá styrkur sem lítill gaumur hefur verið gefinn hjá okkur hér á íslenska DKG svæðinu, en það er Lucile Cornetet styrkurinn. Sá styrkur er á vegum Delta Kappa Gamma Educational Foundation og er tvískiptur. Annar hluti hans styrkir landsambönd og svæði (regions) til að standa fyrir menntandi ráðstefnum, hinn hluti sjóðsins (og sá sem er spennandi kostur fyrir DKG konur sem einstaklinga) styrkir konur sem vinna í fræðslustörfum (all employed educators ) til að sækja ráðstefnur og aðra viðburði er tengjast menntun (Conferences, Seminars, Lecture series, National certification, Online courses, Workshops and other non-degree programs), þó ekki hefðbundin háskólanámskeið í einingabæru námi.

Styrkinn má m.a. nota til að greiða með ferðakostnað, gistingu, fæði, skrásetningargjöld sem og til að greiða staðgengilslaun starfsmanns meðan viðburðurinn stendur yfir. Umsóknarfrestur er þrisvar á ári: 1. feb., 1. maí og 1. sept. og ekki er hægt að sækja um styrkinn eftir að viðburðurinn hefur átt sér stað.

Nánar má lesa um þennan styrk á vef Educational Foundation og þar eru jafnframt umsóknareyðublöð þar sem nánar er fjallað um tilurð þessa styrks og reglur hans. Vakin er athygli á að þessi sjóður styrkir ekki konur til þátttöku í viðburðum sem haldnir eru á vegum Delta Kappa Gamma, heldur einungis menntandi viðburðum sem haldnir eru utan samtakanna.