Mars/aprilhefti af NEWS komið á vefinn

Vakin er athygli á því að rafræna útgáfan af NEWS fréttabréfinu (mars/april eintakið) er komin á vefinn. Auk hefðbundins efnis er þar að finna ýmsar upplýsingar varðandi alþjóðasambandsþingið í sumar sem haldið verður í Spokane í Washingtonfylki. Síðast en ekki síst er þar að finna nákvæma kynningu á þeim breytingum sem lagt er til að gerðar verði á lögum og reglum alþjóðasambandsins en þær breytingar verða  lagðar fyrir þingið í sumar.