Membership Memo

Kristín Jónsdóttir í Gammadeild situr í alþjóðlegu nefndinni, Membership Committee. Annan hvern mánuð gefur nefndin út lítið fréttabréf sem ber heitið Membership Memo. Í síðasta tölublaði (nóv/des) skrifaði Kristín grein í blaðið um stofnun nýrra deilda.

Greinin er byggð á fyrirlestri sem þær Ingibjörg Einarsdóttir og Ingibjörg Jónasdóttir fluttu á Evrópuþinginu í Amsterdam síðastliðið sumar um stofnun nýrra deilda og fylgir greininni ljósmynd frá stofnfundi Mýdeildar.

Hér má nálgast Membership Memo Nóv/Des  með greininni hennar Kristínar, en einnig eintakið frá því í sept/okt.