Nýjar konur í samtökin

Ingibjörg Jónasdóttir landssambandsforseti hefur verið viðstödd þrjá jólafundi nú á aðventunni. Á öllum þessum fundum bættust við nýjar konur og var það afar ánægjulegt. Þetadeild tók inn fjórar nýjar systur, Jótadeild þrjár, en ein verður tekin inn í vor. Gammadeildin tók inn þrjár og ein verður sett inn í vor. Epsilon deildin er einnig að bæta við sig konum nú á vordögum. Alfadeildin hefur bætt við sig þó nokkrum konum nú í ár. Við erum því óðum að nálgast að verða 300 talsins.