Nýr alþjóðaforseti og nýjar stjórnir

Dr. Beverly H. Helms
Dr. Beverly H. Helms
Á alþjóðasambandsþinginu sem haldið var í New York  núna í lok júlímánaðar var kosinn nýr alþjóðaforseti til næstu tveggja ára og ný stjórn alþjóðasambandsins. Það var Dr. Beverly H. Helms sem var kosinn forseti og má lesa ræðuna sem hún flutti við það tækifæri hér. Einkunnarorð hennar fyrir næstu tvö árin eru: Sharing out Vision. Strenghtening our Society.  Þess má einnig geta að ný stjórn í Evrópu Forum fyrir næstu tvö árin (2012–2014) hefur verið kosin og má sjá hverjir sitja í þeirri stjórn á Evrópuvefnum.