Póstlisti

Hér neðst í vinstra horninu á forsíðunni er nú kominn möguleiki til að skrá sig á póstlista og fá nýjustu fréttir af vefnum sendar til sín í tölvupósti. Hægt er að velja um að fá fréttir bæði af landssambandshlutanum og frá öllum deildum. Einungis er hakað við þá póstlista sem viðkomandi vill vera áskrifandi að og smellt á Senda og er þá áskriftinni þar með komið á framfæri. Það er svo hlutverk þess sem setur inn fréttir hjá hverri deild að sjá til þess að fréttin fari á póstlistann í viðbót við vefinn sjálfan.