Pre-Seminar í Baden Baden ágúst 2011

Pre-Regional Conference Seminar haldið þriðjudaginn 2. ágúst 2011 mun bera yfirskriftina Educational challenges in the 21st Century - "Haven´t you heard, Miss, us boys don´t read". Þar mun verða fjallað um þá erfiðleika sem kennarar eru að glíma við meðal annars varðandi lesskilning.

Þarna er gert ráð fyrir að sem flest Evrópulöndin verði með innlegg og það geti orðið góð umræða um hvernig staðan er í hverju landi og hvernig löndin eru að bregðast við.
Ef þið lumið á erindi sem gæti verið gott innlegg inn í þennan dag eða vitið um einhvern sem er með slíkt, þá látið Ingibjörgu Jónasdóttur landsforseta (ij@host.is) vita, en hún þarf að senda inn tillögur ekki síðar en 10.janúar.