Rannveig Löve sæmd fálkaorðunni

Rannveig Löve var í hópi 12 Íslendinga sem forseti Íslands sæmdi heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag.

Rannveig Löve hefur verið félagi í Gammadeild frá 1978. Við óskum henni hjartanlega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu. Hún er okkur góð fyrirmynd og er alltaf jafnvirk í samtökunum þó hún sé komin á 91. aldursár.