Schools for Africa

Við bendum á söfnunina Schools for Africa sem við stöndum að í samstarfi við UNICEF. Það er kynning á verkefninu í haustblaði Fréttabréfsins og undir  Starfsemi – Afríkuverkefnið hér til hliðar. Það væri skemmtilegt ef deildirnar eða einstaka systur leggðu eitthvað af mörkum t.d. á jólafundi til þessa verkefnis. Ef jólafundir eru afstaðnir þá bendum við konum að leggja inn á reikning Landssambands DKG, 546-26-2379, kennitala: 491095-2379 og setja UNICEF sem skýringu.  Við munum afhenda Unicef fyrstu upphæðina milli jóla og nýjárs. Vinsamlegast komið þessu á framfæri við konur í ykkar deildum.