Til hamingju Ingibjörg :-)

Þau ánægjulegu tíðindi voru tilkynnt í dag að landssambandsforseta okkar, Ingibjörgu Jónasdóttur í Gammadeild, hafi verið úthlutað styrk úr Golden Gift Fund sjóðnum en sá sjóður styrkir m.a. félagskonur til að sækja leiðtogaþjálfun sem haldin er annað hvert ár í höfuðstöðvum samtakann í Austin, Texas. Nánar má lesa um Goden Gift Fund á þessari slóð. Við óskum Ingibjörgu innilega til hamingju með þennan heiður.